Strategía
Ég hjálpa fyrirtækjum að skilgreina hvar þau ætla að keppa og hvernig þau ætla að vinna. Í þeim tilgangi að skapa því forskot á markaði.
Hvernig lítur sigur út?
Hvar ætlarðu að keppa?
Hvernig ætlarðu að sigra?
Hvaða styrkleikar þurfa að vera til staðar?
Hvernig styðurðu við þá?
Brand strategía
Ég hjálpa fyrirtækjum að skilgreina hvaða virði það veitir hverjum og að staðsetja sig í hugum þeirra — hvernig það vill að fólk upplifi fyrirtækið eða vöruna.
Sýn + Markmið + Hlutverk + Gildi
Markhópar + Samkeppni
Styrkleikar + Ávinningur
Virðistilboð (e. value proposition)
Staðfærsla (e. positioning)
Vörumerkjastoðir
Persónuleiki og tónn
Innleiðing
Ég hjálpa fyritækjum við innleiðingu á strategíunni, því góð strategía er lítils virði án vel framkvæmdar innleiðingar.
Reglulegir fundir.
Eftirfylgni og aðhald.
Greining á helstu áskorunum og tækifærum.
Ráðgjöf um ólíka þætti innleiðingar.
Finna og sjá um samskipti við rétta samstarfsaðila.
Samskipta- og markaðstrategía
Ég hjálpa fyrirtækjum að skilgreina hvað þau ætla að segja, hverjum, hvar, hvenær og hvernig.
Markmið
Markhópar og aðrir hagaðilar.
Skilaboð.
Boðleiðir.
Samskipta- og markaðsáætlun.
Briefs
Ég hjálpa fyrirtækjum við að komast að kjarna málsins. Það bætir ekki bara vinnuna heldur sparar bæði tíma og fjármuni.
„Client brief“: öflun og samantekt á öllum þeim upplýsingum sem vörumerkja-, samskipta- og markaðsstefna þarnast.
„Creative brief“: samantekt og kjörnun á vörumerkja-, samskipta- eða markaðstefnu sem afhent er auglýsingastofum eða öðrum samstarfsaðilum og nýtist þeim sem stökkpallur fyrir hugmyndavinnu.