Staðfærsla vörumerkis

Að velja sér skýra stöðu og verja hana—í öllu sem þú gerir.


Flest vörumerki eru ósýnileg

Við erum umkringd ótal vörumerkjum. Þau öskra á okkur úr öllum áttum. Fæst þeirra ná í gegn því þau standa ekki fyrir neitt í hugum og hjörtum fólks—skortir skýra staðsetningu.

Vörumerki sem ætla sér að vera allt fyrir alla enda með að verða ekki neitt fyrir neinum.

Af hverju þig?

Sterk staðsetning vörumerkis er ekki bara einhver slagorð eða fallegar auglýsingar. Hún byggir á djúpum skilningi á markaðnum, samkeppninni og viðskiptavinunum.

Hún svarar í raun einfaldri en erfiðri spurningu: Fyrir hvað stendur vörumerkið og hvers vegna ætti einhver að velja það?

Ávinningur af skýrri staðsetningu

  • Skýrari stefna

  • Einfaldari ákvarðanataka

  • Aukin aðgreining á markaði

  • Sterkari tengsl við viðskiptavini

  • Aukin arðsemi

Samkvæmur sjálfum sér

Staðsetning verður að endurspeglast í öllu sem vörumerkið gerir. Frá vöruþróun til þjónustu. Frá ráðningum til markaðssetningar.

Þannig skaparðu vörumerki sem fólk treystir, velur og mælir með.

Látum verkin tala

Ég vinn með metnaðarfullum stjórnendum sem vilja byggja upp sterk vörumerki—ímynd og orðspor. Við kortleggjum stöðuna, greinum tækifærin og skilgreinum skýra staðsetningu sem gefur fyrirtækinu forskot á markaði.

Áherslan er á framkvæmanlega strategíu sem byggir á raunverulegum styrk vörumerkisins. Strategíu sem allir innan fyrirtækisins skilja og geta unnið eftir.


Fyrsta skrefið í átt að sigursælli staðsetningu er að hittast í kaffi.

Bóka fund