Stefnumótun
Skýr og miðlanleg strategía virkar sem leiðarljós við alla ákvarðanatöku og eykur til muna líkur á árangri.
Strategía ≠ plan
Það er algengur misskilgningur að strategía sé bara markmið og aðgerðalisti. Að þegar powerpoint-glærurnar með fallegum myndunum og „catchy“ slagorðunum eru tilbúnar, sé vinnunni lokið.
Þetta er skiljanlegt. Enda eitthvað sem við könnumst flest við.
Þetta er ástæða þess að svo margar strategíur skila ekki árangri, og þess að fólk er farið að gefast upp á strategíuvinnu. Telur hana vera tímasóun — „Enn ein vinnustofan!?“
Strategía = leiðarljós til árangurs
Strategía snýst um að velja og hafna. Hún á að vera mengi af samhangandi ákvörðunum sem virka sem leiðarljós til árangurs.
Hún svarar þeirri einföldu en erfiðu spurningu: Hvernig ætlum við að ná árangri?
Hún er tilgáta um hið óþekkta — framtíðina. Þess vegna er ekki nóg að móta strategíu og setja svo ofan í skúffu. Hún krefst stöðugrar endurskoðunar og aðlögunar. Í raun má líta á mótun strategíu sem ferli frekar en verkefni.
Ávinningur af skýrri strategíu
Einfaldari ákvarðanataka.
Hagkvæmari ráðstöfun auðlinda.
Dýnamískari menning.
Aukin aðlögunarhæfni.
Aukin samkeppnishæfni.
Leikið til sigurs
Playing to Win-aðferðafræð (e. framework) Rogers Martin er einföld en áhrifarík leið til að taka strategískar ákvarðanir. Hún byggir á fimm megin-spurningum sem hjálpa þér að skilgreina hvert þú vilt stefna og hvernig þú ætlar að komast þangað.
Innleiðing skiptir öllu
Góð strategía er einföld. Ekki einföld að móta, heldur einföld að skilja og framkvæma. Því flóknari sem hún er, því ólíklegra er að hún skili árangri. Ef fólk skilur ekki strategíuna eða getur ekki notað hana við daglega ákvarðanatöku, þá er betur setið heima.
Þess vegna er mikilvægt að hafa alla lykilhagaðila með í ferlinu. Að allir skilji hvernig þeirra framlag tengist og styður við heildarstrategíuna.