
Leiðarljós að árangri
Ég aðstoða metnaðarfulla stofnendur og stjórnendur fyrirtækja við strategíska uppbyggingu sterkra vörumerkja. Saman mótum við skýra og miðlanlega strategíu sem virkar sem leiðarljós við alla ákvarðanatöku—fyrir þig og allt fyrirtækið.
En frábær strategía er lítils virði án árangursríkrar innleiðingar. Ég skil þig ekki eftir með skúffuskýrslu heldur aðstoða þig við framkvæmd strategíunnar.
Hvernig ég get hjálpað þér…
-
Ég hjálpa þér að skilgreina hvar þú ætlar að keppa og hvernig þú ætlar að vinna. Í þeim tilgangi að skapa þér forskot á markaði.
Hvernig lítur sigur út?
Hvar ætlarðu að keppa?
Hvernig ætlarðu að sigra?
Hvaða styrkleikar þurfa að vera til staðar?
Hvernig styðurðu við þá?
-
Ég hjálpa þér við innleiðingu á strategíunni, að halda fókus og leiða verkefnið áfram.
Eftirfylgni og aðhald.
Greining á helstu áskorunum og tækifærum.
Ráðgjöf um ólíka þætti innleiðingar.
Finna og sjá um samskipti við rétta samstarfsaðila.
-
Ég hjálpa þér að staðetja vörumerkið, á aðgreinandi hátt, í hugum fólks þannig að það auki líkur á árangri.
Markhópar: þarfir, langanir, væntingar, viðhorf, hegðun…
Styrkleikar þínir og ávinningur viðskiptavina af þeim.
Samkeppnisaðilar; beinir og óbeinir, styrkleikar þeirra og veikleikar.
Aðgreining þín gagnvart samskeppnisaðilum.
Vörumerkja-stoðir, meginskilaboð, persónuleiki og tónn.
-
Ég hjálpa þér að kortleggja vegferð og upplifun viðskiptavina —af vörunni, þjónustunni og vörumerkinu—í gegnum alla snertifleti.
‘Customer Personas’
Kortlagning á snertiflötum.
Mat á upplifun; góð eða slæm.
Tækifæri og áskoranir.
Tillögur að aðgerðum.
-
Ég hjálpa þér að skilgreina hvað þú ætlar að segja, hverjum, hvar, hvenær og hvernig.
Markhópar og aðrir hagaðilar.
Markmið: Hvað viljum við að þau hugsi/líði/geri?
Áskoranir: Hvaða hindranir standa í veginum?
Skilaboð: Hvað þurfa þau að skilja?
Boðleiðir: Hvernig er best að ná til þeirra?
Með blöndu af skapandi hugsun og strategískri nálgun, hef ég í yfir 15 ár aðstoðað fyrirtæki og stofnanir í ólíkum geirum íslensks atvinnulífs.
Ávinningur af skýrri strategíu
Einfaldari ákvarðanataka.
Tímasparnaður
Hagkvæmari ráðstöfun auðlinda.
Aukin aðlögunarhæfni.
Dýnamískari menning.
Aukin samkeppnishæfni.
Ávinningur af sterku vörumerki
Aukin framtíðar-eftirspurn.
Verðlagningarvald.
Betur varin fyrir krísum.
Markvissara sölu- og markaðsstarf.
Eftirsóttari vinnuveitandi.
Aukin samkeppnishæfni.
Sterk vörumerki verða ekki til af sjálfu sér. Sem huglæg lifandi fyrirbæri, þarf að byggja þau upp og rækta.
Þú þarft að vera með á hreinu hvaða virði þú ert að veita hverjum og hvernig þú ætlar að staðsetja þig í hugum þeirra.
Hvaða virði færirðu hvaða fólki?
Hvernig færirðu þeim það?
Hvernig miðlarðu því til þeirra?
Hversu sterkt er vörumerkið þitt?
Ertu með allt á heinu? Er allt í tómu rugli og þú þarft á skyndihjálp að halda? Líklega ertu einhvers staðar þar á milli og það eru tækifæri til framfara.
Þorvalds er ráðgjafarþjónusta Gunnars Þorvaldssonar.
Í meira en 15 ár hef ég aðstoðað fyrirtæki við að móta strategíu sína og innleiða. Fyrst sem ‘creative’ og strategisti á auglýsingastofunni Jónsson & Le’macks og síðar sem strategisti í ráðgjafafyrirtækjunum Aton.JL og Instrument.
Ég hef séð af eigin raun hvernig mótiverandi strategía—sem tekur mið af öllum snertiflötum fólks við vörumerkið—og árangursrík innleiðing, getur umbreytt fyrirtækjum og tekið þau á næsta stig.
Samvinna er kjarninn í nálgun minni. Strategían leynist innan fyrirtækisins og verkefni mitt er að draga hana fram, móta og kjarna með þér.
Strategía er í raun tilgáta um framtíðina—um hvernig maður ætlar að hafa áhrif á hegðun fólks. Þar kemur reynsla mín úr hönnun og skapandi vinnu að góðum notum.
Samhliða Þorvalds er ég mentor í Klak auk þess að kenna vörumerkjastjórnum við Háskóla Íslands.
Strategía og vörumerki eru tvö af misskildustu hugtökum viðskipta. Þetta er það sem ég meina:
Strategía er ekki markmið. Eða listi af aðgerðum.
Strategía er sett af samhangandi—upplýstum—ákvörðunum um hvernig við ætlum að ná árangri.
Strategía virkar sem leiðarljós við alla ákvarðanatöku.
Strategía er ekki meitluð í stein.
Strategía mótast og tekur mið af breytingum í innra og ytra umhverfi.
Vörumerki er ekki logo. Eða útlit á vefsíðu.
Vörumerki er ímynd og orðspor fyrirtækis eða vöru.
Vörumerki mótast af allri upplifun fólks af viðkomandi fyrirtæki eða vöru.
Vörumerki býr í hugum fólks og hjörtum.
Vörumerki eru huglæg lifandi fyrirbæri sem þarf að byggja þau upp og rækta.